Wednesday, June 28, 2017

Tómatsúpa úr ofbökuðum tómötum

Af hverju blogga ég ekki meira? Af hverju get ég aldrei sparkað í rassinn á mér að stinga hérna inn öllum þeim góðu uppskriftum sem ég elda. Ef ég bara vissi. Oft er þörf en nú er nauðsyn að spíta í lófana (samt ekki) og setja inn uppskrift. Löngu komin tími til! Þessi tómatsúpa er gerð úr ofnbökuðum tómötum og er dásamleg í einu orði. Þetta er nokkuð hlutlaus uppskrift og stór, þannig að afganga má nýta í ýmislegt. Ég hef verið að búa til pastasósur og öðruvísi súpur, svo sem mexíkóska. Í þessari uppskrift eru kartöflur notaðar til að þykkja súpuna og gefa henni mýkri áferð, það hljómar kannski undarlega en það svínvirkar!
Þessi uppskrift kemur upphaflega af síðunni Cafe Delites með örlitlum breytingum.

Uppskriftin hljóðar svo:
1.2 kg tómatar, skornir í tvennt langsum
600 kirsuberjatómatar, skorni í tvennt langsum
8 hvítlauksrif, afhýdd og marin með hníf
3 msk ólífuolía
salt og pipar
sykur (ef vill)
1 stór laukur, skorin í bita
1 rauð paprika, skorin í bita
1 gulrót, skorin í bita
200 g kartöflur, skornar í bita (afhýddar ef vill)
3 msk tómatmauk
1 l grænmetiskraftur
handfylli af ferskri basílíku eða eftir smekk (þurrkuð virkar líka vel)

Hitið ofninn í 220°. Setjið tómata í ofnskúffu með hvítlauknum, hellið 2 msk af olíunni yfir og kryddið með salti og pipar. Stráið örlitlum sykri yfir tómatana, þetta minnkar sýruna í þeim, og bakið í 25 mín eða þangað til þeir eru orðnir mjúkir og farnir að taka lit.
Á meðan tómatarnir eru að bakast, hitið þá afganginn af olíunni í stórum potti. Setjið grænmetið útí og steikið í um það bil 6-7 mín eða þar til laukurinn er glær og kartöflurnar hafa tekið lit. Hrærið tómatmaukinu saman við grænmetið og hellið kraftinum yfir. Suðan er látin koma upp og síðan er þessu leyft að malla í um það bil 15 mín á lágum hita eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
Bætið svo tómötunum út í og basilíkunni. Þegar basilíkan er orðin mjúk má blanda súpuna saman með töfrasprota. Smakkið til með salti og pipar. Berið fram með góðu brauði og smá rjómaslettu.


Thursday, February 23, 2017

Spari pasta með sveppum og kasjúrjóma

Ég held að ég hafi farið til matarhimnaríkis í dag. Þvílík dásemd maður minn. Rakst á þessa uppskrift fyrir löngu síðan á einni af uppáhalds youtube rásinni minni hotforfood þar sem Lauren Toyota og John kærastinn hennar töfra fram mjög girnilega vegan rétti. Ég hef áður prófað mjög góða hluti frá þeim en þetta pasta sló öll met. Það er virkilega rjómakennt og ljúffengt en á sama tíma ekki mjög þungt í maga. Ég mæli eindregið með þessum ljúffenga og sparilega pastarétti.



400 g pasta

Kasjúrjómi:
1 1/2 bolli kasjúhnetur sem hafa legið í bleyti í að minnsta kosti 3 klst
1 bolli vatn
1 tsk eplaedik
1 msk sítrónusafi

2 msk ólífuolía til að steikja upp úr
1 laukur fínt saxaður
2 portobello sveppir fínt sneiddir
4 bollar sveppir fínt sneiddir (upphaflega uppskriftin gerir ráð fyrir kastaníusveppum en ég átti bara venjulega og það var fínt)
4 hvítlauksgeirar, marðir
4 bollar spínat
250 ml grænmetiskraftur
1/2 bolli hvítvín eða 1 msk sítrónusafi á móti svipuðu magni af vökva
1 tsk steinselja
1 - 1 1/2 tsk basilika eða 2 msk fersk
1/2 tsk sjávarsalt
1/2 pipar

Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.

Hellið vatninu af kasjúhnetunum og skolið þær. Skellið í blandara með vatni, eplaediki og sítrónusafa og blandið þar til silkimjúkt. Hér er betra að vera með kraftmikinn blandara. Ef blandarinn er kraftlítill er gott að hafa hneturnar lengur í bleyti, t.d. yfir nótt. Hversu mjúk sósan verður fer eftir gæðum blandarans.

Notið stóra pönnu og steikið laukinn í tvær mínútur í olíunni þangað til að hann hefur mýkst. Bætið sveppunum við og eldið í fjórar mínútur í viðbót. Þegar sveppirnir eru farnir að gefa frá sér vökva er komið að því að bæta hvítlauk, salti og pipar saman við og steikja í 3-4 mínútur í viðbót.

Þegar sveppirnir hafa skroppið saman og losað sig við mest allt vatnið er hvítvínunu bætt við (eða krafti og sítrónusafa) og þetta látið malla í rúmlega fimm mínútur.  Lækkið hitann og bætið steinselju og basilíku út á.

Hrærið kasjúrjómanum útá, spínatinu og hrærið svo grænmetiskraftinum varlega saman við. Hrærið þessi saman í þrjár mínútur og smakkið til. Bætið pastanu saman við og berið fram strax. Gott að snæða með kokteilstómötum, parmesanosti (vegan eða ekki) og góðu salati.

Tuesday, October 18, 2016

Grænmeti í kókos karrý sósu

Kannist þið við það þegar þú situr upp í sófa og veltir því fyrir þér hvort að í raun og veru hafiru frítíma. Ertu kannski bara að gleyma öllu? Það er svona dagur í dag. Ég sit áhyggjulaus upp í sófa undir teppi og pikka á lyklaborðið. Hef ég virkilega tíma í þetta, ég sem horfði inni í skóladagbókina mína með hryllingi síðast í gær. Ég hreinlega veit það ekki og nenni ekki að eyða tíma í að hafa áhyggjur af því, ekki í dag að minnsta kosti.
Af því að ég var svo einstaklega áhyggjulaus upp úr þurru, ákvað ég að það að henda í karrý rétt. Mig er búið að langa í einn svoleiðis í þónokkurn tíma og fannst tilvalið að skella í einn úr ískápnum. Það góða með þennan pottrétt er að þú getur í raun sett hvaða grænmeti sem þú vilt út í. Blómkál, sæta kartöflu (nei takk!), kúrbít eða rófu? Já bara hvað sem er!
Þetta er töfrandi réttur og bragðið himneskt. Ég bar hann fram með brúnum hrísgrjónum og var það einstaklega gott. Eins og venjulega eldaði ég fyrir sirka 10 manns þó ég sé ein að borða. Þetta er ágætlega stór uppskrift og giska ég á að hún dugi fyrir sirka fjóra til fimm. Plús þá er þessi réttur allur úr plönturíkinu og því góður fyrir ofnæmispésa, vegana eða þá sem vilja minnka kjötneyslu. Ég á eftir að njóta næstu daga og vonandi þú líka.

Fyrir 4-5 sirka:
Kókosolía til að steikja upp úr.
1 laukur
2 hvítlauksrif
1 góð tsk engifer ferskt
2 msk karrý
1/2 tsk cumin (má sleppa)
2 msk tómatpaste
1 dós kókosmjólk (ég notaði thai choice)
1 dós saxaðir tómatar
1 dós kjúklingabaunir
1 grænmetisteningur
1 stórt höfuð spergilkál
1 rauð paprika
3 góðar gulrætur
vatn eftir smekk
pipar og salt ef vill

Byrjið á því að skera lauk smátt, merja hvítlaukinn, saxa engiferið, skera spergilkálið niður í munnbita, rauðu paprikuna í litla bita og gulræturnar í sneiðar. Ég nota allt spergilkálið enda algjör óþarfi að henda stilknum.
Því næst skal kókosolía brædd í potti. Laukurinn er steikur í tvær til þrjár mínútur. Þá er hvítlauk og engifer bætt úti og hrært í 30 sek. Því næst er karrý, cumin og tómatpúrrunni bætt út í og hrært aftur í 30 sek.
Því næst er kókosmjólk, tómötum, kjúklingabaunum, grænmetisteningi, spergilkáli, papriku og gulrótum bætt við. Vatn er eftir smekk og fer eftir því hversu þykk kásssan á að ver að þínu mati. Ég saltaði ekki þar sem grænmetisteningurinn er frekar saltur. Það er þó bara smekks atriði.
Suðan er látin koma upp og fær þetta að malla í svona 25 mínútur. Þá er eldhúsið farið að ilma dásamlega og þú getur varla beðið eftir að ausa í skál! Já, svo dásamlegt er það.

Ískaldur raunveruleiki

Best að taka það fram rétt í lokin að sætar kartöflur eru svo sem ágætar en ég hef það ágætt án þeirra ;)

Góðar stundir!


Hugleiðingar um grænmeti

Við Íslendingar erum því miður ekki nógu duglegir að borða fimm á dag. Ávextir og grænmeti eru stútfull af næringarefnum sem við þörfnumst og því er nauðsynlegt fyrir okkur að fá daglega skammtin.

Vissuð þið að við getum nefnilega fengið allt sem við þurfum nema kannski B12 úr plöntum. Finnst ykkur það ekki ansi gott? Mér fannst asnalegt fyrir sirka ári síðan að vera vegan. Hvað var það eiginlega? Við mættum öll sækja í veganisma þá fyrirmynd að hafa uppistöðuna í fæðu okkar grænmeti, einstaka sinnum kjöt og fisk. Við þurfum nefnilega ekki alltaf að háma í okkur og steikur og borgara. Stundum er bara gott að borða baunir og gulrætur fyrir okkur þó að sumum finnist erfitt að viðurkenna það.

Í haust ákvað ég að fara af stað með tilraunastarfsemi. Mig langaði að prófa að borða meira af grænmeti og ávöxtum. Ég ákvað því að þegar ég borðaði heima á virkum dögum myndi ég aðeins borða grænmetisfæði (vegeterian, egg og mjólkurvörur). Þetta hefur verið mjög skemmtileg tilraunastarfssemi. Ég finn mun á mér, húðin er betri og andleg líðan. Eins og kennarinn minn í næringarfræði sagði í dag þá hefur grænmetis og ávaxtaneysla oft í för með sér góðar útkomur og minnkar líkur á hinum og þessum kvillum. Kannski eru þetta bara lyfleysuáhrif á mig en hvað um það, maginn er sáttur og líkaminn með. Er þá ekki allt í góðu?

Annars er ég með nýja uppskrift í handraðanum stútfulla af góðu grænmeti og vonast ég til að geta skellt henni inn hér fljótlega, það er nefnilega svolítið langt um liðið síðan ég mallaði eitthvað með ykkur. Sjáumst fljótlega!

Thursday, May 5, 2016

Vegan rjómakennt tómat pasta með bulsum

Þeir sem þekkja mig vita að ég elska tómata, og þeir sem hafa skoðað uppskriftir á þessari síðu eru kannski ekki svo hissa á því heldur. Tómatsúpur, pasta, tómatar á pizzu, tómatar, tómatar og tómatar. Tómatar eru svona næstum góðir með öllu. Svo að það var mér líkt að reka augun í þessa uppskrift á alnetinu, upphaflega síðan er www.veganyumyum.com en ég gat ekki að einhverjum furðulegum ástæðum opnað hana aftur svo að ég skellti bara í þetta eftir minni.
Þessi uppskrift er nokkrum númerum of góð. Tómatar, tómatpaste, hvítlaukur, kasjúhnetur, basilíka og rauðar piparflögur! Hallelúja! Ekki skemmir fyrir að þetta er allt sett í blandara og voila, tilbúin rjómakennd sósa sem fær bragðlaukana til að dansa. Ég ákvað síðan að skella smá bulsum á pönnuna sem ég átti í frosti. Fyrir þá sem ekki vita eru bulsur íslenskar grænmetispylsur og eru ljúffengar hvort sem er með kartöflutöppu eða pasta. Í þetta skiptið sauð ég makkarónur með og kom það heldur betur vel út.

Uppskrift fyrir 4:

200-300g pasta af eigin vali (ATH: ef þú vilt passa að pastað sé vegan þá þarftu að sjá hvort að það séu egg í því).
3 bulsur

Sósa:
8 kokteiltómatar skornir í tvennt
2 msk tómatpaste
3 hvítlauksgeirar
1/2 bolli kasjúhnetur sem legið hafa í bleyti í að minnsta kosti 3-4 klst ef þið eigið lúinn blandara eins og ég
Vatn eftir því hvað þú vilt hafa þetta þykkt
1 tsk basilíka
rauðar piparflögur á hnífsoddi

Byrjið að því að sjóða pasta eftir leiðbeiningum á pakka. Takið plastið utan af bulsunu, skerið þær í sneiðar og steikið á pönnu í olíu. Takið bulsurnar úr og setjið til hliðar.
Sósa: Byrjið á því að skera kokteiltómatana í tvennt og setja út í blandara ásamt restinni af innihaldinu. Blandið þar til áferðin er að ykkar skapi.
Takið nú pönnuna sem þið steiktuð bulsurnar á og setjið sósuna út aðeins til að hita hana. Bætið svo við bulsum og pasta og hrærið saman.
Berið fram með góðu salati og bros á vör!
Ó þvílík sæla! 

Creamy dreamy! Ég hafði bulsurnar í sósunni á pönnuni en þær áttu það til að verða að mauki svo í uppskriftinni mæli ég með því að veiða þær upp úr.


Sunday, May 1, 2016

Sterk thai núðluskál

Fyrir nokkrum vikum var ég veðurteppt í Reykjavík. Ég skrapp suður að sjá mamma mia, ó hvað það var gaman! Mæli 200% með þeirri sýningu (ef ég er ekki þegar búin að því) það var hinsvegar ekki jafn gaman að vera veðurteppt og það í borg óttans í þokkabót! Í þessu veseni var mér boðið út að borða með ákaflega skemmtilegum stúlkum. Fyrir valinu varð Noodle Station en það er eins og nafnið gefur til kynna núðlustaður. Þar er aðeins seld ein núðlusúpa með kjúklingi, nautakjöti eða grænmeti. Við prófuðum kjúklingasúpuna og heilagur harðfiskur, hún var góð! Svo góð að ég er búin að vera með hana á heilanum síðan.... Pinterest hefur verið besti vinur minn í þessum efnum, þar er ógrynni rétta og nóg af innblæstri. Þar rakst ég á þessa skál og ákvað að slá til og vona að þarna væri eitthvað svipað á ferðinni eins og á Noodle Station. Þó að hún væri ekki eins og ég verði að halda leit minni áfram var þetta skrambi gott.
Vona að þið njótið eins og ég!

Fyrir 5:

450g nautakjöt skorið í litla bita
hálft búnt af vorlauk
2 stilkar sellerý
4 hvítlauksgerirar
1 msk ferskur engifer smátt skorinn
1 tsk rautt karrý mauk frá thai choice
1250 ml nautasoð eða annar kraftur
1/2 tsk fiski sósa
1 msk púðursykur
1 msk soya sósa (tamari ef þú vilt glúteinfrítt)
200 g hrísgrjónanúðlur (meira eða minna eftir smekk)

1. Hitið kókósolíu eða grænmetisolíu í potti.
2. Kryddið kjötið með salti og pipar.
3. Brúnið kjötið í pottinum og setjið til hliðar.
4. Setjið engiferið, hvítlaukinn, vorlaukinn og sellerý á sömu pönnuna og steikið í nokkrar mínútur til að leyfa grænmetinu að mýkjast.
5. Bætið við chili maukinu og steikið saman í eina mínútu.
6. Bætið soðinu út í og hitið að suðu. Lækkið hitann og setjið nautakjötið út í. Leyfið þessu að malla sirka hálftíma.
8. Eldið hrísgrjónanúðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
9. Þegar soðið hefur mallað sinn tíma bætið þá við fiski sósunni, púðursykrinum og soya sósunni. Bætið núðlunum einnig út í.

Borið fram með baunaspírum, ferskum kóríander og fersku chili ef þú vilt hafa þetta VERULEGA sterkt.

Bon appetit!
Soð, grænmeti og kjöt



Nú er bara að munda prjónana, ef ég kynni á þá þar að segja



Thursday, April 28, 2016

Nautahakks chili

Chili er eins og sagt er á vondri íslensku ulitmate comfort food. Það er svo gott að snæða skál af chili þegar veður er kalt og manni langar ekkert annað en að kúra undir sæng í staðinn fyrir að læra undir próf. Chili er líka fullt af kryddum og baunum sem mynda einstaklega góða heildarmynd. Ég elska chili því að það er svo auðvelt, allt í einn pott og ekkert vesen. Svo má gera fullt með afgangana, setja í vefjur, yfir nachos, í taca eða bara það sem þér dettur í hug. Þessi uppskrift gaf uppáhalds YouTube stjarnan mín, Sarah Lynn sem heldur úti stöðinni The Domestic Geek. Mæli með því að kíkja á hana enda afbragðs skemmtileg! Ef þú ert ekki hrifin af kjöti er önnur uppskrift hér á síðunni af grænmetis chili sem er alveg vegan.

Hér kemur uppskrift af þessu dásemdar chili:
2 msk bragðlaus olía
1 laukur saxaður
2 stilkar sellerý skornir smátt
1 paprika skorinn smátt
3 hvítlauksrif
500 g nautahakk
1 msk chili duft (meira eða minna eftir smekk)
1 msk cumin
1 msk hvítlauksduft
1 tsk oregano
1 tsk koríander
salt og pipar til að smakka til með
2 dósir baunir að eigin vali (notaði svartar baunir og baunablöndu)
2 dósir hakkaðir tómatar
1 bolli nautakraftur
1 msk Worcestershire sósa

Hitið olíu í stórum potti.
Bætið út í lauk, sellerý og papriku. Steikið í fimm mínútur og leyfið grænmetinu að mýkjast. Bætið út í hvítlauk og steikið í mínútu í viðbót.
Setjið þá hakkið út í og steikið í gegn. Bætið þá út í kryddunum og leyfið þeim að steikjast með í um mínútu.
Bætið við baunum, tómötum, krafti og Worcestershire sósu. Hrærið vel saman og hitið að suðu. Lækkið þá hitann leyfið þessu að malla í hálftíma upp í tvo tíma.
Berið fram með góðri slettu af sýrðum rjóma, nachos, cheddar osti og avocado.

Vona að þið njótið!